Tuesday, 25 August 2009

Thursday, 13 August 2009

Friday, 7 August 2009

Tuesday, 4 August 2009

loksins búið að setja blóm í blómabeðið

Fyrir svona 3 vikum voru settar niður nokkrar plöntur og svo kom maður áðan og kláraði dæmið, mjög huggulegt :)

Saturday, 25 July 2009

Wednesday, 22 July 2009

tómatauppskera

tel 17 tómatabörn á plöntunni í augnablikinu. þessir tveir verða í matinn í kvöld :)

Thursday, 16 July 2009

ssssss...

sá aftur snák í dag
minni og öðruvísi á litinn
richmond park ekki alveg jafn krúttlegur garður og hann var
ég er allaveg hætt að hlaupa í grasinu

Wednesday, 15 July 2009

snákur


sá snák tvö í richmond park í gær. í þetta skiptið er ég með vitni og ég sá hann hreyfast (í fyrra skiptið hefði þetta allt eins getað verið dóta snákur úr plast). ég er svo með einhver útbrot á fætinum og mér var illt í honum í gærkvöld, augljóslega snákabit...
billi heldur því fram að þetta sé bara eftir brenninetlu!

Thursday, 18 June 2009

móskarðshnúkar

Fórum upp á einn hnúkinn í dag, hefði auðvitað verið við hæfi að setja inn mynd af okkur á tindinum en það var svo mikill vindur að það var ekki hægt að taka upp myndavélina!

Monday, 15 June 2009

langjökull

Fengum að sitja í með pabba og Hannesi á Langjökul í dag. Þeir þurftu að sækja tvö tæki og lesa á eina veðurstöð. Komum líka við í þremur borholum á bakaleiðinni til að athuga yfirborðshæð grunnvatns. Frábært í alla staði.

Billi að billast

Hafrafell og Eiríksjökull

veðurstöð að veðra

pabbi í fjarska

pabbi ekki svo mikið í fjarska

Thursday, 14 May 2009

MA verkefni

Blurb er ein al sniðugasta hugmindin á netinu,, www.blurb.com. Þeir prenta firir mann bækur á slikk og bjóða uppá að selja þær til almennings. Ég prentaði MA verkefnið mitt hjá prentsmiðju hér í London og þeir kúktu rækilega upp á bak. Ég lét því Blurb prenta hana aftur og loksins er hún tilbúin. Það er hægt að sjá preview af henni hér.


A visual view on c...
By Brynjar Gunnarsson

Wednesday, 13 May 2009

fyrsta uppskeran

bráðum þurfum við að breyta nafninu á þessu bloggi í "gluggayrkjuhornið"

Sunday, 10 May 2009

billi plantar

þurftum að grisja tómataplönturnar og ávkáðum að prófa að setja nokkra út í leiðinnu. bættum líka við graslauk, parsley, rocket og meiri basil og coriander hérna inni.

Thursday, 23 April 2009

Mac Billi


létum loskins verða af því áðan að kaupa nýja tölvu fyrir billi. vorum ekki alveg búin að hugsa málið til enda, gerðum ráð fyrir nokkra daga bið tíma eins og í apple búðini heima og vorum ekki alveg búin að hugsa hvað þetta er mikið flykki. ætluðum að labba heim en gáfumst upp og tókum leigubíl.

Tuesday, 21 April 2009

gróðurhús


risavaxnar tómatplöntur

pínulitlir chili ávextir á pínulítilli chili plöntu
Kriddjurtir og papriku tré 

Við s.s. erum svolítið í því að búa í gróðurhúsi þessa dagana... misreiknuðum okkur pínulítið þegar við vorum að sá. Erum núna með 14 tómataplöntur inní stofu sem eru við það að verða óviðráðanalega stórar. Eiga víst eftir að stækka pínulítið í viðbót því fullorðin planta er c.a. 150 cm á hæð. En vonandi verðum við nú búin að koma þeim út áður en að því kemur... 

Monday, 30 March 2009

músiktilraunir

setti inn link hér við hliðina á flickr síðu músiktilrauna. þar eru myndirnar sem að billi er að taka núna og líka frá árunum á undan, fleiri árum verður líklega bætt við bráðum. billi á ekki myndirnar frá 2008.

m+p

mamma og pabbi komu í helgar heimsókn í síðustu viku. vorum mest hér í kingston en fórum einn dag niður á southbank.


Hayward gallery
Gordon's wine bar


Borðuðum hádegismat hér. Mjög gott, ég fékk einhverskonar böku!


Afgreiðslu"stúlkan" var krúttleg kona um nírætt sem að kjögraði um, lagði á borð og spjallaði við viðskiptavinina.

Saturday, 14 March 2009

wii



vann þokkalega wii, víííííííííí :)
nú er bara spurningin hvað á að gera við gripinn (billi vill skipta því í xbox360)
hefur einhver prófað wii fit? er það frábært?