Tuesday 24 February 2009

sultugerð

billi og bjarnheiður versluðu rabbabara til sultugerðar á markaðnum í síðustu viku.
fyrsta sultu tilraun var ekki alveg að gera sig, það varð til rabbabara og engifer karamella freakar en sulta.
en taka tvö, rabbabari og epli tókst heldur betur vel. áfram billi.



Monday 16 February 2009

nýtt minni í tölvuna

Frekar frábært. Þurfti tvær tilraunir, það þarf að látta það klikka svoldið vel í og í fyrsty tilraun þorði ég ekki að ýta almennlega á það. Eftir að hafa horft á u-tube myndband af sömu aðgerð þá fylltist ég eldmóði og ýtti á eftir því eins og væri engin morgun dagur!


Monday 9 February 2009

krúttlegu hlaupafélagar mínir


mér er nú frekar illa við það þegar þeir eru svona inn á stígnum, sérstaklega ef að þeir eru hinum megin við götuna líka og maður þarf að fara á milli þeira. því að þó þeir séu krúttlegir þá er bara 1 ég á móti 15-30 af þeim!

Monday 2 February 2009

Snjógleði

Það byrjaði sum sé að snjóa í gærkvöldi.


Jo, Shinri og Billi á leið heim frá Croydon.

Flestir skólar og vinnu staðir voru lokaðir í dag og það gekk enginn strætó. Strax í morgunn var fólk því farið að labba í garðinn með snjóþotur eða bara hvað sem að því datt í hug að hægt væri að renna sér á.


Garðurinn í dag.


Ég og Billi inn í snjóhúsi sem að einhver hafði búið til.

Við bjuggum til snjólkarl og fórum svo að renna okkur.


Jo, Shinri, snjókarlinn og Billi

Við fórum svo heim til okkar og Billi bjó til lummur.
Sum sé frekar góður dagur :)

Sunday 1 February 2009

Ljubljana

Fór í viku skólaferðalag til Sloveníu í janúar. Það var mjög gaman, mjög kalt (-10) og mikið af snjó.





teiknimynda snjókorn


"snjó"hlíf, algeng sjón í Ljubljana


adam og jo á skíðum. héldum að við yrðu strandaglópar á skíðasvæðinu en ótrúlega almennilegur ekki-enskumælandi starfsmaður skutlaði okkur í næsta þorp á lödunni sinni.


ladan góða. við biðum svo í von og óvon í meira en klukkutíma eftir rútunni. eftir að hafa spurt nokkra vegfaraendur þá fundum við tímatöflu á slovensku og það hjálpaði nákvæmlega ekki neitt. hressandi að vera þar sem að maður skilur ekki orð í tungumálinu og engin talar ensku :)